Rutland Vindrafstöðvar

Rutland Furlmatic FM910-3

Ásco ehf. selur og þjónustar Furlmatic 910-3 sem hentar fullkomlega við einangraðar aðstæður þar sem rafmagns er þörf, og er gjarna notuð þar sem unnið er með hugbúnað svo sem hvers kyns mælitæki, fjarmælingar, fjarskipti, slóðalýsingar, færanlegar stjórnstöðvar og sumarhús hvers konar.

Rutland Furlmatic 910-3 er uppfærsla af hinni frábærlega velheppnuðu FM910 vindrafstöð sem kom á markaðinn 1998. FM 910-3 inniheldur nýjustu útgáfuna af 3 fasa alternatornum frá Rutland (Marlec), sem fenginn er úr Rutland 913 hönnuninni, og framleiðir meira en 25% meira en upphaflega útgáfan.

FM 910-3 er sama grunnhönnunin, sem hefur verið þrautreynd við hinar erfiðustu aðstæður svo sem: við jarðskjálftamælingar á Suðurskautinu og sem samskipta aflgjafi í leiðöngrum í Himalayja fjöllunum.

Furlmatic týpan er með brotstélsbúnað (furling) sem hallar stöðinni lárétt og í réttu horni við ríkjandi vindátt, sé vindur meiri en 15 m/sek (35 mph.) Þetta verndar hverfilinn í of miklum vindi og dregur úr álagi á hverfil og festingar.

Rutland Furlmatic 910-3 framleiðir 72w á 9,8 m/sek. (Sjá graf neðar)

[Sjá einnig Rutland 503 stöðina undir hnappnum RUTLAND efst á síðunni.]


Verð kr.97,403.- m/vsk.

    Hvað gerir Rutland 910-3 svo sérstaka

  • Brotstélshönnunin
  • 3ja fasa Rutland "Unique Design" rafallinn
  • Fínleg dugmikil spaðablöð
  • Sjálfvirk hitavörn í hvassviðri
  • Þvermál hverfils er aðeins 910 mm. (91 cm.)
  • Smíðishlutar úr stáli er galvaniseraðir og Epoxy húðaðir til enn meiri endingar.
  • Einföld í allri uppsetningu og viðhaldi.
  • Passar beint á 2" rör - (61mm. að utanmáli.)
         [ Sjá verð- og íhlutalista ]


Rafgeymar - Við mælum með sýrugeymum, opnum og/eða lokuðum, minnst 75 Amperstunda, 12V.

Lagnir/kaplar - Þykktin veltur á heildarlengd á milli vindrafstöðvarinnar, spennustillisins og rafgeymisins. Fyrir heildarlengd allt að 20 m. mælum við með 2.5mm sverri vírlögn.

Spennustillir Staðsetning - Spennustilli skal ávalt komið fyrir innan 1.5 m. frá rafgeymi til að tryggja sem jafnasta spennu og koma í veg spennutap.

Landfestingar - Rutland FM 910-3 er auðvelt að setja upp með 6m löngu, 2" röri, (61mm sveru) að utanmáli. Rörið má festa í jörðu og/eða í/á aðra stöðuga undirstöðu. Mælt er með 6 m. hæð og 4 stagvírum. Frekari upplýsingar eru svo í leibeiningabæklingi sem fylgir.

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásco, hvort heldur er á staðnum og/eða í síma 461 1092.

Sjá einnig Rutland 503 stöðina undir hnappnum RUTLAND efst á síðunni.












Ásco ehf - Asco electronics, Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri, Ísland · Sími.: (+354) 461 1092 · Fax: (+354) 461 2091 · E-mail:asco@asco.is - Veftré