Ásco bílarafmagn var stofnað snemma árs 1990. Frá upphafi hefur stefna fyrirtækisins verið að veita alhliða þjónustu á sviði bílarafmagns þ.e hvort heldur er um að ræða bilanagreiningar, hleðslumælingar, viðgerðir, nýlagnir, breytingar, sölu varahluta og aukahluta tengdum bílarafmagni, svo sem sölu á störturum og alternatorum ásamt því að eiga á lager helstu íhluti í flestar gerðir þeirra. Þessu til viðbótar hefur verið Ásco rekið vélsmiðju sem annast alla minni járn, stál- og ál og rennismíði.
1994 tók Ásco að sér sölu- og þjónustuumboð fyrir TOYOTA lyftara.
1999 fékk Ásco svo umboðið fyrir RUTLAND vindrafstöðvarnar vinsælu.
1999 var rekstri fyrirtækisins svo breytt í einkahlutafélag þ.e. ehf. Um svipað leyti keypti fyrirtækið núverand 200fm. húsnæði sitt að Glerárgötu 34b á Akureyri og þar una menn glaðir við sitt í björtu og rúmgóðu húsnæði.
Starfsfólk Ásco ehf. hlakkar til að þjónusta þig.
LEITAÐU LIÐSINNIS FAGMANNA - ÞEIR RÁÐA ÞÉR HEILT
|