Toyota er stærsti lyftaraframleiðandi heims með 138,188 framleidda lyftara á ári. Næst á eftir kemur Linde með 105,000 lyftara, og síðan Nacco framleiðandi Hyster og Yale með 84,825 lyftara. Heildarmarkaður á heimsvísu er talinn vera 680,000 lyftarar og skiptist hann í 434,000 hefðbundna gaffallyftara og 246,000 vöruhúsalyftara. Vestur Evrópa og Ameríka eru með 800 milljónir lyftara í umferð, en þar seljast að meðaltali 450 lyftarar á hverja miljón íbúa.
Samsvarandi hlutfall miðað við 5 milljarða íbúafjölda á heimsvísu er þó ekki nema 40 lyftarar að meðaltali á hverja milljón íbúa.
Ísland er eins og svo oft áður undantekning frá þessari reglu en þar seljast að meðaltali 220 lyftarar ár hvert. Toyota lyftarar hafa verið seldir á Íslandi síðan árið 1975, og spannar saga þeirra því yfir 27 ár. Því má segja að reynslusagan sé orðin löng og því alltaf hægt að fá umsögn þeirra sem reynslu hafa af tækjunum. Reynslan er jú ólygnust þegar bera þarf saman hina ýmsu kosti við fjárfestingu á nýjum lyftara.